Starfsemi Foodsmart ehf. á Skagaströnd

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Foodsmart ehf., kt: 621116 2150, að Oddagötu 12, 545 Skagaströnd. Um er að ræða þróun og framleiðsla á lífefnum til manneldis. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 9. september nk.

Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.