Starfsleyfi til kynningar fyrir Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bifreiðaferkstæði KS að Hesteyri 2. Um er að ræða endurnýjun á leyfi til reksturs bifreiðaverkstæðis, að Hesteyri 2. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.
Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðið á Borðeyri, til 19. maí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.